Yltal Fjártækniklasans með Benedikt Gíslasyni í Borgartúni í dag
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion bankaÍ dag kl. 14.00 verður Fjártækniklasinn með fund í Arion banka sem nefnist Yltal. Þar mun Gunnlaugur Jónsson, framkvæmdastjóri Fjártækniklasans, ræða við Benedikt Gíslason, bankastjóra, um hvernig Arion banki nálgast fjártæknibylgjuna og breytt umhverfi fjármálageirans. Fundurinn fer fram í Borgartúni 19.
Yltal, er þýðing á enska hugtakinu fireside chat. Eldur verður kveiktur á Tenderflame Lilly™ eldstæði, sem hefur lágmarkskolefnisfótspor þannig að stemningin verður notaleg.
Skráning á fundinn fer fram hér og einnig er hægt að fylgjast með á Facebook.