Góður valkostur
fyrir fyrirtæki, bændur og einyrkja
Bíla- og tækjalánin eru á formi skuldabréfaláns, þar sem lántaki er skráður eigandi bíls/tækis á samningstíma, eða kaupleigu þar sem Arion banki er skráður eigandi bíls/tækis þar til samningstíma lýkur.
- Samanlagður aldur bíls/tækis og lánstími getur að hámarki verið 12 ár.
- Skilyrði fyrir fjármögnun vinnuvéla eru að tækið verði skráð hjá Vinnueftirliti.
- Bíll/tæki skal vera með viðeigandi tryggingar út lánstíma.
- Að virkur eftirmarkaður sé til staðar fyrir veðsett tæki/vél. Sérfræðingur bankans metur seljanleika tækis og líftíma.
- Ekkert uppgreiðslu eða umframgreiðslugjald er af Atvinnutækjalánum.
- Eingöngu er lánað í íslenskum krónum.
Þegar um fjármögnun bifreiða er að ræða er hægt að óska eftir fjármögnun í gegnum öll helstu bílaumboð landsins. Einnig er hægt að hafa beint samband við sérfræðinga Bíla- og tækjalána. Þegar kemur að fjármögnun vinnuvéla skal hafa samband við sérfræðinga bankans í síma 444-8800 eða senda tölvupóst á netfangið bilar@arionbanki.is.
Við fjármögnun bíla og atvinnutækja sem nota að hluta endurnýjanlega orkugjafa og hluta jarðefnaeldsneyti sem er minni útblástur en 99g/km í vegið C02 gildi, er veittur 50% afsláttur af lántökugjöldum.
Hvernig ber ég mig að?
Þegar um fjármögnun bifreiða er að ræða er hægt að óska eftir fjármögnun í gegnum öll helstu bílaumboð landsins. Einnig er hægt að hafa beint samband við sérfræðinga Bíla- og tækjalána.
Þegar kemur að fjármögnun vinnuvéla skal hafa samband við sérfræðinga bankans í síma 444-8800 eða senda tölvupóst á netfangið bilar@arionbanki.is.