Click to Pay

Snjöll og örugg leið til að versla á netinu!

Nú getur þú tengt kortin þín við Click to Pay á einfaldan hátt í Arion appinu.

Click to Pay er sameiginleg greiðslulausn nokkurra kortasamsteypa; Visa, Mastercard og American Express, sem hefur það markmiði að gera verslun á netinu einfaldari og öruggari.

Hvernig virkja ég Click to Pay?

  1. Byrjaðu á því að opna Arion appið
  2. Ýttu á kortið sem þú vilt tengja við Click to Pay
  3. Ýttu á Meira, svo á Click to Pay og fylgdu örfáum einföldum skrefum

Hvernig nota ég Click to Pay?

Þegar þú notar Click to Pay þegar þú verslar á netinu sleppur þú við að slá inn viðkvæmar upplýsingar eins og kortanúmer, öryggisnúmer og gildistíma. Þess í stað velur þú að greiða með Click to Pay og klárar greiðsluna þannig.

  1. Þú byrjar á því að velja að greiða með Click to Pay í netversluninni
  2. Því næst skráir þú annað hvort símanúmerið eða netfangið þitt í greiðsluformið
  3. Færð í kjölfarið beiðni um auðkenningu í SMSi eða tölvupósti
  4. Velur síðan það kort sem þú vilt greiða með og staðfestir

Athugið að netverslanir sem bjóða upp á Click to Pay birta merki greiðslulausnarinnar á vefsíðu sinni.