Athugasemd við kortafærslu

Ef þú tekur eftir óvenjulegri kortafærslu sem þú kannast ekki við eða hefur greitt með kortinu þínu fyrir vöru eða þjónustu sem ekki skilaði sér þá getur þú átt rétt á að fá færsluna endurgreidda samkvæma endurkröfureglum Visa.

Ef þú kannast ekki við færslu á kortinu þínu er mikilvægt að hafa samband við Arion banka sem fyrst og loka viðkomandi greiðslukorti áður en endurkröfuferlið er sett af stað. Utan opnunartíma bankans er hægt að hringja í neyðarþjónustu greiðslukorta í síma 525-2000.

Gera endurkröfu

Vegna endurkrafna á færslur frá flugfélaginu Play

Hægt er að gera endurkröfu rafrænt með hnappnum hér fyrir ofan og velja þar tegund endurkröfu „Play endurkrafa – þjónusta ekki veitt. Endurkröfubeiðninni þarf að fylgja afrit af bókun þar sem fram þarf að koma upplýsingar um bókunarnúmer, fjölda farþega, dagsetning flugs ásamt brottfarar og áfangastað.

Það sem er endurkröfuhæft:

  • Visa færslur á bæði debet og kreditkort í þeim tilfellum sem greidd þjónusta var ekki veitt.
  • Gera þarf endurkröfu innan 120 daga frá því að flug átti að fara eða 120 daga frá því að flugfélag hætti starfsemi.

Það sem er ekki endurkröfuhæft:

  • Sá hluti þjónustu sem var nýttur.
    • Dæmi: Ef búið er að nota einn fluglegg þá fæst aðeins sá flugleggur sem ekki var mögulegt að nýta endurgreiddur.
    • Dæmi: Ef annar rekstaraðili tekur við þjónustunni og boðið er upp á samsvarandi flug á sama tíma án kostnaðar fyrir korthafa þá er ekki endurkröfuréttur á færsluna.
  • Færslur frá óskildum aðilum sem korthafi getur ekki nýtt vegna þess að flug fellur niður.
    • Dæmi: Hótelpöntun, miðar á tónleika o.s.frv.
      • Ef korthafi getur ekki nýtt sér hótelherbergi, eða tónleika miða vegna gjaldþrots flugfélags þá fer það eftir skilmálum við kaupinn hvort hann geti sótt endurgreiðslu til hótels/tónleikahaldara eða annars seljanda.
      • Í þessum tilvikum ráðleggjum við korthafa að skoða skilmála og hafa samband við seljanda.

Hafi korthafar bókað ferð í gegnum ferðaskrifstofu bendum við á að hafa samband við ferðaskrifstofuna.

Gagnlegar upplýsingar um gjaldþrot flugrekanda má finna á vef Samgöngustofu.

Ekki með rafræn skilríki

Ef þú hefur ekki rafræn skilríki þá þarf að gera endurkröfu með því að fylla út og undirrita endurkröfueyðublað og senda það ásamt viðeigandi fylgigögnum á endurkrofur@arionbanki.is eða skila því inn í næsta útibú. 

Endurkröfuréttur kortafærsla

Sé endurkrafa gerð á forsendu kortasvika er líklegt að henni verði hafnað ef færslan er framkvæmd með snjallsíma- og snjallúri, staðfest með PIN númeri eða er netfærsla sem hefur verið staðfest í appi eða netbanka. Einnig er líklegt að endurkröfu á forsendu kortasvika verði verði hafnað ef seljandi getur sýnt fram á að það var handhafi kortsins sem framkvæmdi kaup.

Ef endurkröfu er hafnað er ekki hægt að hefja nýtt endurkröfuferli á nýjum forsendum, til dæmis á þeim forsendum að pöntuð vara var ekki afhent. Það er því mikilvægt að gera endurkröfu á réttum forsendum og láta öll viðeigandi gögn fylgja strax í upphafi máls.

Nauðsynlegt er að reyna að leysa málið beint við söluaðila áður en hægt er að framkvæma endurkröfu á færslu þegar um að ræða að vara eða þjónustu skilaði sér ekki.

Þeir skilmálar sem samþykktir eru við kaup á vöru eða þjónustu ákvarða rétt korthafa til að óska eftir endurgreiðslu. Á þetta meðal annars við um rétt til endurgreiðslu ef þjónusta eða áskrift er afpöntuð eða ef pöntuð vara er ekki móttekin.

Endurkröfuferlið

  • Tekur mið af hámarki 35 færslum sem eru ekki eldri en 120 daga gamlar.
  • Mikilvægt er að allar tiltækar upplýsingar og gögn komi strax fram svo hægt sé að framkvæma endurkröfu á réttum forsendum og til að tryggja að réttur til endurkröfu falli ekki niður.
  • Ferlið getur tekið frá nokkrum dögum upp á allt að 10 vikur frá því að gögn berast.
    • Tímalengd ræðst af eðli máls og þeim gögnum sem er framvísað með kröfunni. Mál geta dregist lengur ef söluaðili mótmælir endurkröfubeiðni.

Algengar endurkröfur

Réttarúrræði viðskiptavina

Ef endurgreiðsla á kortafærslu fæst ekki í gegnum endurkröfuferli kortsins og viðskiptavinur er ósáttur við svör bankans þá getur hann nálgast upplýsingar um hvernig hann kemur kvörtun á framfæri á vefsíðunni Réttarúrræði viðskiptavina. Á þeirri síðu eru jafnframt upplýsingar um úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki, en nánari upplýsingar um þá úrskurðarnefnd má finna á nefndir.is.