Aukið öryggi

Kortatilkynningar úr Arion appinu

Við höfum uppfært tilkynningarnar sem við sendum úr Arion appinu* þegar þú greiðir fyrir vöru eða þjónustu með kortinu þínu. 

Tilgangurinn er að auðvelda þér að bregðast hratt og örugglega við ef þú sérð færslu sem þú kannast ekki við eða ef tiltekinni aðgerð er hafnað.

*Athugið að tilkynningin berst óháð því hvernig færslan var framkvæmd (í síma eða úri, með kortaplasti, í verslun eða á netinu).

Eru þetta öðruvísi tilkynningar en áður?

Þessar nýju og uppfærðu tilkynningar geyma einfalda skýringu á því hvað gerðist og hvernig þú getur brugðist við.

Dæmi:

  1. Rangur gildistími – Þú finnur gildistímann í Arion appinu
  2. Heimild fullnýtt – Þú getur óskað eftir hækkun í Arion appinu

Hvað með tilkynningarnar sem ég fæ nú þegar frá Apple og Google Wallet?

Ofannefndar tilkynningar úr Arion appinu bætast við þær tilkynningar sem þú færð nú þegar frá Apple eða Google Wallet.

Til að forðast að fá tvær tilkynningar um sömu færsluna mælum við með að slökkva á Apple eða Google Wallet tilkynningunum þar sem Arion app tilkynningin nær yfir allar greiðslur en ekki einungis þær sem greiddar eru með símanum.

Hvað ef...