Einfaldari innheimtuþjónusta

Félagaþjónusta hentar bæði lögaðilum og einstaklingum sem eru með reglulega innheimtu, til dæmis leigusalar og húsfélög.

Leiðbeiningar um notkun kerfisins má finna hér fyrir neðan.

Fyrir hverja er félagaþjónustan?

Með félagaþjónustu getur þú haft yfirsýn og stjórnað reglulegum innheimtum sem tengjast þínum viðskiptum.

Félagaþjónustan er aðgengileg fyrir viðskiptavini í netbanka Arion undir innheimtuþjónustu og þar getur þú auðveldlega sinnt öllum innheimtuaðgerðum á einum stað.

Helstu aðgerðir og virkni

  • Breyta gjöldum
  • Breyta greiðanda
  • Sundurliðanir á gjöldum hjá greiðendum
  • Upplýsingar um vanskil
  • Yfirlit yfir mánaðarleg gjöld

Hefur þú áhuga?

Vinsamlegast hafið samband við okkur í tölvupósti á netfangið innheimtuthjonusta@arionbanki.is og við hjálpum þér að setja þjónustuna upp.