Framfærslulán
Lánasjóður íslenskra námsmanna greiðir út lán til námsmanna í lok hverrar annar. Fyrir námsmenn getur verið erfitt brúa bilið fjárhagslega frá því að önnin hefst og þar til lánið frá LÍN er greitt út. Framfærslulán Arion banka er ætlað að hjálpa námsmönnum að brúa það bil.
Hvernig virkar framfærslulán?
Framfærslulánið er í formi yfirdráttarheimildar á sérstökum framfærslureikningi. Þú millifærir af framfærsluláninu í Netbankanum og skammtar þér þannig framfærslu yfir önnina fram að þeim tíma sem LÍN greiðir út.
Hvað kostar að taka framfærslulán?
Kostnaður við lánið er í formi vaxta og eru þeir mun lægri en á almennum yfirdráttarlánum. Þú getur kynnt þér vexti framfærslulána með því að skoða vaxtatöflu bankans.
Vaxtakostnaður skuldfærist sjálfkrafa af debetreikningnum þínum og eingöngu er greiddur vaxtakostnaður fyrir þann hluta heimildarinnar sem þú nýtir.
Hvernig sæki ég um framfærslulán?
Þú getur gengið frá stofnun framfærslureiknings í næsta útibúi en eftir það getur þú sótt um framfærslu fyrir hverja önn á einfaldan hátt í gegnum Netbankann þinn. Hægt er að sækja um að fá allt að 100% framfærslulán til ráðstöfunar á hverri önn.
Hvernig virkar framfærslulán?
Framfærslulánið er í formi yfirdráttarheimildar á sérstökum framfærslureikningi í erlendri mynt. Þú millifærir af framfærsluláninu í Netbankanum og skammtar þér þannig framfærslu yfir önnina fram að þeim tíma sem LÍN greiðir út.Hvað kostar að taka framfærslulán?
Kostnaður við lánið er í formi vaxta og eru þeir mun lægri en á almennum yfirdráttarlánum. Þú getur kynnt þér vexti framfærslulána með því að skoða vaxtatöflu bankans. Bankinn lánar fyrir vaxtakostnaði.Hvernig sæki ég um framfærslulán?
Þú getur gengið frá stofnun framfærslureiknings í næsta útibúi en eftir það getur þú sótt um framfærslu fyrir hverja önn á einfaldan hátt í gegnum Netbankann þinn. Hægt er að sækja um að fá allt að 95% framfærslulán til ráðstöfunar á hverri önn.Er gengisáhætta af framfærsluláni til erlendra námsmanna?
Engin gengisáhætta myndast við umsýslu lánsins þar sem þar sem bankinn lánar í sömu mynt og LÍN áætlar.Námsmenn sem eru að ljúka námi geta sótt um Námslokalán innan eins árs frá útskrift. Hámarksfjárhæð er 3.000.000 kr. með fasteignaveði eða 1.000.000 kr. án trygginga.
Hægt er að velja um verðtryggt eða óverðtryggt lán.
- Til að létta greiðslubyrði í upphafi þá er mögulegt að velja um að greiða eingöngu vaxtagjalddaga í allt að 24 mánuði frá lántöku.
- Lánstími stjórnast af veði,verðtryggingu og vaxtagjalddögum.
- Ekkert uppgreiðslugjald.Lánað er eftir útlánareglum Arion banka.