Fjárfestingar og íslenskt hagkerfi
Á viðburðinum verður farið yfir helstu fjárfestingarleiðir, stöðu á mörkuðum og hvernig þróun í hagkerfinu getur haft áhrif á fjárfestingar á komandi misserum.
Dagskrá:
Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka, rýnir í stöðuna í hagkerfinu okkar - hvað er fram undan á árinu og hvaða lykilstærðir hafa áhrif á þá þróun.
Kristbjörg M. Kristinsdóttir og Snædís Ögn Flosadóttir kafa dýpra í fjárfestingar og fjalla m.a. um innlendan og erlendan hlutabréfamarkað, mismunandi sjóði og hvernig þeir geta hentað til að byggja upp dreift eignarsafn.
Viðburðurinn stendur yfir í um klukkustund og í lokin gefst rými til að spyrja spurninga.
Hvetjum vinkonur til að mæta saman, eiga góða kvöldstund og halda umræðunni áfram að loknum fyrirlestri.

Hvar: Fantasía, Vinnustofa Kjarvals, Reykjavík
Hvenær: 18. mars kl. 17:00
Skráning
Skráðar munu fá senda tölvupósta sem tengjast skráningu á viðburðinn.