Konur fjárfestum á Siglufirði

Langar þig að læra fyrstu skrefin í fjárfestingum eða að stofna fyrirtæki?

Þá er tækifærið núna því Arion mun halda Konur fjárfestum fræðsluviðburð í Síldarkaffi á Siglufirði, fimmtudaginn 22. maí kl. 17:00. Farið verður yfir grunnatriði í fjárfestingum og praktísku atriðin um stofnun fyrirtækja.

Snædís Ögn Flosadóttir opnar viðburðinn og segir okkur stuttlega frá átaksverkefninu „Konur fjárfestum“ sem Arion setti á laggirnar í byrjun árs 2024. Síðan mun hún leiða okkur í gegnum grunnatriði í fjárfestingum, lykilhugtök og hvernig byrja á að fjárfesta í sjóðum, hlutabréfum og skuldabréfum.

Hjördís Gulla Gylfadóttir fer síðan yfir praktísku atriðin um hvernig þú stofnar fyrirtæki og mikilvægi trygginga í fyrirtækjarekstri.

Boðið verður upp á léttar veitingar fyrir fundinn.

Hvetjum vinkonur til að mæta saman, eiga góða kvöldstund og halda umræðunni áfram að loknum fyrirlestri.

Hvar: Síldarkaffi, Snorragötu 14, Siglufirði
Hvenær: 22. maí kl. 17:00

Skráning

Að lokum, viltu svara spurningunni hér fyrir neðan í tölustöfum svo við vitum að þú sért ekki vélmenni? :)

Skráðar munu fá senda tölvupósta sem tengjast skráningu á viðburðinn.