Góð ráð fyrir fæðingarorlofið
Þann 26. mars næstkomandi ætlum við að halda sérstakan viðburð í stóra salnum á Edition og svara öllu sem þig langaði að vita um fæðingarorlofið og fjármál. Viðburðurinn hefst klukkan 17:00 og stendur yfir í um 90 mínútur og í lokin gefst rými til að spyrja spurninga.
Dagskrá:
Jarþrúður Birgisdóttir, þjónustustjóri í Höfðaútibúi, fer yfir fjármál í fæðingarorlofi.
Snædís Ögn Flosadóttir, forstöðumaður á mörkuðum hjá Arion, fer yfir lífeyrismál í fæðingarorlofi, m.a. möguleikann á skiptingu réttinda.
Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar, fer yfir mikilvægi trygginga í fæðingarorlofi og á meðan meðgöngu stendur.
Helga Reynisdóttir, ljósmóðir, flytur að lokum erindi um þær breytingar sem verða á meðgöngu og eftir fæðingu og hvernig þekking, virk þátttaka og meðvitaður undirbúningur styrkir verðandi foreldra í ferlinu öllu. Loks veitir Helga konum góð ráð varðandi það sem koma skal og svarar spurningum gesta.
Við hvetjum þig til að taka maka, foreldra, vinkonu eða aðra áhugasama með á viðburðinn.

Hvar: Edition, Austurbakka 2, Reykjavík
Hvenær: 26. mars kl. 17:00
Skráning
Skráðar munu fá senda tölvupósta sem tengjast skráningu á viðburðinn.