Hvernig stofna ég fyrirtæki?

Förum yfir hvernig þú stofnar fyrirtæki og hverju þarf að huga að í léttu spjalli í Sykursal,Grósku, Reykjavík.

Dagskrá:

Guðmunda Ósk Kristjánsdóttir, forstöðumaður á fyrirtækjasviði hjá Arion banka, fer yfir praktísku málin varðandi það hvernig þú stofnar fyrirtæki.

Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar, fer yfir hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að tryggingum fyrirtækja.

Gerður Huld Arinbjarnardóttir eigandi Blush segir okkur að lokum frá reynslusögu sinni af því að stofna fyrirtæki 21 árs með hugrekkið að vopni. Gerði hefur tekist að skapa stöndugt og rótgróið fyrirtæki og hefur lært margt á vegferðinni sem hún ætlar að deila með okkur.

Fyrirlesturinn er um 90 mínútur, spjall og spurningar í kjölfarið.

Hvetjum vinkonur til að mæta saman, eiga góða kvöldstund og halda umræðunni áfram að loknum fyrirlestri.

Hvar: Sykursalur, Grósku, Reykjavík
Hvenær: 26. nóvember kl. 17:00
 

Skráning

Að lokum, viltu svara spurningunni hér fyrir neðan í tölustöfum svo við vitum að þú sért ekki vélmenni? :)

Skráðar munu fá senda tölvupósta sem tengjast skráningu á viðburðinn.