Langar þig að stofna fyrirtæki?
Förum yfir hvernig þú stofnar fyrirtæki og hverju þarf að huga að í léttu spjalli í Fantasíu á Vinnustofu Kjarvals, Reykjavík.
Dagskrá:
Guðmunda Ósk Kristjánsdóttir, forstöðumaður á fyrirtækjasviði hjá Arion banka, fer yfir praktísku málin varðandi það hvernig þú stofnar fyrirtæki.
Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar, fer yfir hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að tryggingum fyrirtækja.
Sylvía Briem Friðjónsdóttir deilir reynslu sinni sem fyrirtækjaeigandi. Hún er einn af stofnendum Steindals ehf., sem var stofnað árið 2019 og fékk viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki aðeins þremur árum síðar. Nýlega keypti hún, ásamt samstarfsaðilum, einn stærsta fasteignavef landsins, Fastann (fastinn.is), og horfir björtum augum til framtíðar þar. Auk þess er hún einn af stofnendum hlaðvarpsins Normsins, sem gaf út 220 þætti og óx í umfangsmikinn rekstur.
Fyrirlesturinn er um 90 mínútur, spjall og spurningar í kjölfarið.
Hvetjum vinkonur til að mæta saman, eiga góða kvöldstund og halda umræðunni áfram að loknum fyrirlestri.

Hvar: Fantasía, Vinnustofa Kjarvals, Reykjavík
Hvenær: 5. febrúar kl. 17:00
Skráning
Skráðar munu fá senda tölvupósta sem tengjast skráningu á viðburðinn.