Fjárfestingarkeppni Arion er lokið!

Haft verður samband við sigurvegara í tölvupósti.

Ert þú í Háskóla Íslands
eða í Háskólanum í Reykjavík
og hefur áhuga á fjárfestingum?

 
Við kynnum til leiks fjárfestingarkeppni í samstarfi við Dyngju þar sem þú lærir að fjárfesta án þess að taka óþarfa áhættu.

Þú skráir þig til leiks í gegnum Dyngju appið og færð í kjölfarið 100 milljón sýndarveruleikakrónur til þess að fjárfesta með. Þú getur átt viðskipti með öll hlutabréf sem eru skráð á aðalmarkað Nasdaq á Íslandi og hlutabréf sem eru skráð á First North markaðinn.

Keppnin hefst 4. september og stendur til 3. nóvember en á þessu tímabili munt þú búa þér til eignasafn og stýra því með það að markmiði að ná fram sem mestri ávöxtun. Sigurvegari keppninnar er síðan sá sem hefur náð fram mestri ávöxtun á safninu sínu á þessu tímabili.

Heildarverðmæti vinninga eru 275.000 kr.

Fjárfestingarkeppni Arion er hafin

Með opnun markaða þann 4. september hófst fjárfestingarkeppni Arion fyrir háskólanemendur.

Markmiðið okkar með keppninni er að efla fræðslu um fjárfestingar og sjóðastýringu og gera nemendum kleift að kljást við raunveruleg verkefni úr atvinnulífinu. Við viljum því hvetja nemendur til að skoða fræðsluefnið sem má finna í Dyngju appinu þar sem farið er yfir helstu atriði og hugtök tengd fjárfestingum.

Leikreglur:
  1. Aðeins nemendur HR og HÍ geta unnið verðlaun, og verður beðið um staðfestingu á skólavist fyrir þá nemendur sem enda í efstu þremur sætunum.
  2. Til að eiga möguleika að vinna verðlaun þarf að skrá sig til leiks fyrir 1. október (nemendum er velkomið að taka þátt eftir 1. október en geta þá ekki unnið til verðlauna).
  3. Þegar keypt er eign er ekki hægt að selja hana samdægurs, halda verður í eignina í a.m.k. einn dag.
  4. Til að eiga möguleika á verðlaunum þarf að dreifa fjármunum, þ.e. sá sem tekur þátt skal eiga í að lágmarki fjórum fyrirtækjum yfir keppnina.
  5. Ef einstaklingur verður sekur um innherjasvindl eða misnotar upplýsingar um verðþróun á sá aðili hættu á að verða vikið úr keppni.
  6. Aðeins er hægt að kaupa og selja eignir á opnunartíma íslensku kauphallarinnar, sem er frá 9:30 til 15:30 alla virka daga.

Hver sigrar bónusvikuna?

Þann 1. október ætlum við að vera með aukakeppni í Fjárfestingarkeppni Arion sem mun standa til 7. október.
Sá sem nær fram mestri ávöxtun á þessu tímabili verður krýndur sigurvegari bónusvikunnar.

Þorir þú að taka áhættu með eignasafnið þitt?

Spurt og svarað