Góð ráð fyrir fríið

Að ýmsu þarf að huga fyrir fríið. Hér eru nokkur góð ráð til þeirra sem ætla að ferðast í sumar.

Kreditkortið með í ferðalagið

Það er einfalt að sækja um kreditkort í Arion appinu. Þú þarft ekki að bíða eftir að fá kortið afhent því kortið er virkt um leið og það birtist í Arion appinu og þá getur þú skráð kreditkortið í símaveskið og borgað með símanum. PIN númer kortsins finnur þú í Arion appinu og netbankanum.

Kortatryggingar veita öryggi á ferðalögum

Kortatryggingar fylgja öllum kreditkortum Arion banka. Tryggingarnar ná ekki aðeins til þín sem korthafa, heldur einnig til maka, sambýlismaka og barna á þínu framfæri, til loka 22 ára aldurs. Nánari upplýsingar um skilmála kortatrygginga Arion banka finnur þú á vefsíðu Varðar.

Ekki er nauðsynlegt að greiða ferðina með kreditkorti til að kortatryggingin sé í gildi þegar ferðast er til útlanda. Það er nóg að vera með gilt kreditkort í upphafi ferðar.

Þegar ferðast er innanlands er tryggingin aðeins gild ef að minnsta kosti helmingur ferðakostnaðar sem fellur til áður en ferð hefst er greiddur með kreditkortinu. Hafa ber í huga að á ferðalögum á Íslandi eru slysatjón á einkabifreiðum undanskilin.

Gengi

Þegar verslað er erlendis með korti er úttektarupphæðin umreiknuð í íslenskar krónur. Gengi helstu gjaldmiðla í kortaviðskiptum má finna á vefsíðu Arion banka. Þegar gengi er skoðað skal miða útreikning við kortagengi og sölugengi.

Stundum er hægt að velja á milli þess að greiða í íslenskum krónum eða gjaldmiðli þess lands sem þú ert í þegar verslað er erlendis. Berðu saman kjörin áður en þú ákveður í hvaða mynt viðskiptin eiga að fara fram. Oftast er mun hagkvæmara að versla í erlendu myntinni.

Gjaldeyrir

Víðast hvar má núorðið greiða með kortum og gjaldeyrir því nánast orðinn óþarfi á ferðalögum. Stundum er þó skynsamlegt að vera með gjaldeyri á sér til öryggis. Upp geta komið aðstæður þar sem kortið virkar ekki eða söluaðilar vöru eða þjónustu kjósa frekar að fá greitt í peningum, til að mynda leigubílstjórar eða veitingastaðir. Margir kjósa einnig að gefa þjórfé með peningum.

Þegar þú kaupir gjaldeyri selur bankinn eða söluaðilinn þér hann á sölugengi seðlagengis. Ef þú kýst að selja erlenda seðla eru þeir keyptir á kaupgengi seðlagengis. Athugaðu að kanna fyrst hvort sú mynt, sem þú hefur hug á að kaupa eða selja, er örugglega í boði hjá Arion banka.

Skoðaðu einnig vel hvaða gengi er í boði áður en erlendir seðlar eru keyptir því að kjörin geta verið mjög misjöfn. Allajafna er dýrt að kaupa seðla á flugvöllum, bæði hér heima og í útlöndum, og eins í „götubönkum“ erlendis. Oft bætast við þóknanir hjá slíkum aðilum sem eiga það til að vera mjög háar.

Glatað kort

Ef þú glatar debet- eða kreditkorti er gott er að byrja á því að frysta kortið í Arion appinu eða netbankanum. Á sama hátt er auðvelt að virkja það aftur ef kortið finnst. Þegar kort er fryst lokast á notkun kortsins en boðgreiðslur/áskriftir virka áfram auk þess sem áfram er hægt að borga með símanum.

Þegar þú hefur leitað af þér allan grun þá geturðu látið loka kortinu varanlega með því að tilkynna það glatað/stolið til þjónustuvers Arion banka í síma 444 7000. Utan afgreiðslutíma bankans getur þú haft samband við neyðarþjónustu í síma 525 2000. 

Kortasvik

Passaðu að enginn sjái þegar þú slærð inn PIN númer til að staðfesta greiðslu og gættu þess alltaf þegar þú greiðir með símanum að aðrir sjái ekki lykilorðið að símanum. Hafðu símtækið alltaf læst og aldrei staðfesta færslu með PIN númeri eða greiðslu með símanum nema tryggja að upphæð sé í samræmi við kaupin.

Sjá nánar um varnir gegn kortasvikum

Snertilausar greiðslur

Það er einfalt að skrá bæði debet- og kreditkort í símaveskið og borga með símanum sem er þægileg og örugg leið til að greiða fyrir vörur og þjónustu. Þegar greitt er með korti í posa verður af öryggisástæðum að staðfesta greiðslur yfir 7.500 kr. með PIN númeri og einnig eftir samanlagðar greiðslur að upphæð 15.000 kr.

Sjá nánar um snertilausar greiðslur með síma eða úri 

Hraðbankar

Margir nýta sér hraðbankaþjónustu til að nálgast reiðufé erlendis. Gott er að hafa í huga að greiða þarf fyrir slíka þjónustu. Vel staðsettir hraðbankar á fjölförnum ferðamannastöðum eru yfirleitt dýrir og það á einnig við um hraðbanka á flugvöllum, bæði hér heima og erlendis. Hraðbankar í bankaútibúum eru oftast ódýrari og einnig öruggari kostur. Varast skal að greiða fyrir reiðufjárúttektina í íslenskum krónum án þess að kynna sér fyrst vel gengið sem hraðbankinn býður upp á. Oftast er mun dýrara að velja íslenskar krónur en erlendu myntina.

Arion banki innheimtir þegar kort frá bankanum er notað til úttekta í hraðbanka. Það er vegna þess að bankinn þarf að greiða eiganda hraðbankans þóknun fyrir að þjónusta korthafann. Það er hagkvæmara að nota debetkortið en kreditkortið þegar taka á út pening í hraðbanka og jafnframt oft ódýrara að taka út stærri upphæð í einni færslu en margar litlar þar sem lágmarksþóknun er oft tekin fyrir hverja úttekt.

Að lokum má benda á að ef þig vantar reiðufé hér innanlands er best að nota debetkort Arion banka og hraðbanka Arion banka. Ekkert gjald tekið af slíkum úttektum.

Einkaklúbburinn

Ef þú ert viðskiptavinur Arion banka býðst þér sjálfkrafa aðild að Einkaklúbbnum. Þú getur sótt Einkaklúbbsappið í símann þinn og fengið aðgang að fjölmörgum tilboðum hjá yfir 250 þjónustuaðilum um land allt.

Þú getur því sparað með því að nýta þér tilboðin í Einkaklúbbnum um leið og þú nýtur lífsins í fríinu.

Sjá nánar um Einkaklúbbinn

Vildarpunktar Icelandair

Ef þú átt Vildarpunkta Icelandair þá getur þú nýtt þá í fríinu með margvíslegum hætti, til að greiða fyrir flug, gistingu, bílaleigubíl eða upplifanir svo dæmi séu nefnd. Til að bóka með Vildarpunktum þarftu að vera skráð(ur) inn á Saga Club reikninginn þinn hjá Icelandair.

Sjá nánar á vef Icelandair

Við óskum þér góðs sumarfrís hvert sem ferðinni er heitið. Við minnum á að þjónustuverið okkar er opið alla virka daga kl. 9–16 í síma 444 7000 auk þess sem hægt er að fá samband við neyðarþjónustu korta allan sólarhringinn í sama númeri. Einnig er hægt að hafa samband við okkur í netspjalli eða með því að senda tölvupóst á arionbanki@arionbanki.is.

Greinar