Ertu í verktöku, sumarvinnu eða hlutastarfi?

Ef svo er ættirðu að hitta okkur í Húsi máls og menningar miðvikudaginn 21. maí, kl. 17:00, en þá ætlum við að svara öllum helstu praktísku spurningunum sem kunna að brenna á þér.

Til dæmis:

Hvað þarf að hafa í huga þegar þú færð verktakagreiðslur?
Hver er munurinn á verktaka og launþega?
Hvaða félagaform hentar best fyrir verktaka og giggara?
Hvað er viðbótarlífeyrissparnaður og hvernig geturðu nýtt launin þín sem best til að ná fjárhagslegum markmiðum – hvort sem það eru íbúðarkaup, fjárhagslegt frelsi eða næsta ferðalag?

Dagskrá:

Birna Rún Eiríksdóttir, leikkona og uppistandari, opnar viðburðinn og deilir reynslu sinni sem verktaki/giggari – þeirri samantekt vill engin kona missa af!

Guðrún Björg Bragadóttir, skattaráðgjafi hjá KPMG, fer yfir helstu atriði sem varða muninn á verktökum og launþegum, mismunandi félagaform og það sem þarf að hafa í huga til að standa rétt að málum.

Snædís Ögn Flosadóttir, forstöðumaður á mörkuðum hjá Arion banka, leiðir okkur svo í gegnum hvernig best er að nýta launin, fyrstu skref í fjárfestingum og mikilvægi viðbótarlífeyrissparnaðar.

Erindin standa í um klukkustund og rými gefið fyrir spjall og spurningar í kjölfarið.

Öll velkomin!

Hvar: Hús máls og menningar, Laugavegi 18, Reykjavík
Hvenær: 21. maí kl. 17:00

Skráning 

Að lokum, viltu svara spurningunni hér fyrir neðan í tölustöfum svo við vitum að þú sért ekki vélmenni? :)

Skráð munu fá senda tölvupósta sem tengjast skráningu á viðburðinn.