Ert þú að huga að fasteignakaupum, nú eða að velta fyrir þér stöðunni á einni stærstu fjárfestingu heimilisins og mögulega að huga að endurfjármögnun?
Hittu okkur í Fantasíusalnum á Vinnustofu Kjarvals, fimmtudaginn 22. maí kl. 17:00 til að ræða þetta nánar.
Dagskrá:
Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka, fjallar um húsnæðismarkaðinn, þróun síðast liðina ára, stöðuna í dag og hvers gæti verið að vænta.
Jarþrúður Birgisdóttir, sérfræðingur á viðskiptabankasviði, fer því næst í saumana á öllu sem viðkemur fjármögnun fasteignakaupa bæði með íbúðarláni og nýtingu viðbótarlífeyrissparnaðar, breytilega og fasta vexti, verðtryggð og óverðtryggð lán og muninn á jöfnum greiðslum og jöfnum afborgunum.
Erindin standa í um klukkustund og rými gefið fyrir spjall og spurningar í kjölfarið.
Öll velkomin!
Hvar: Fantasíusalurinn, Vinnustofu Kjarvals, Reykjavík
Hvenær: 22. maí kl. 17:00
Skráning
Skráð munu fá senda tölvupósta sem tengjast skráningu á viðburðinn.