Skipuleggðu fjármálin í Arion appinu
Í nýrri virkni í Arion appinu fá einstaklingar innsýn í fjármálin á einfaldan og skýran hátt með þægilegri framsetningu á útgjöldum og innborgunum.
Fjármálin þín í Arion appinu gefa þér einstaka yfirsýn yfir stöðuna. Hvar peningarnir eru og í hvað þeir fara.
Veistu hve miklu þú eyðir í mat eða skyndibita á mánuði?
Hvað þú borgaðir í tryggingar á síðasta ári?
Hvað kostar að reka bílinn?
Tímalína
Á tímalínu færðu einfalda og góða yfirsýn yfir allar þínar færslur. Færslurnar eru flokkaðar sjálfkrafa í yfir og undirflokka. Þannig færð þú yfirsýn yfir fjármál heimilisins á einum og sama stað. Ef þú ert ekki sammála flokkuninni getur þú alltaf breytt um flokk.
Þú getur smellt á aðrar færslur og kafað dýpra í flokka, undirflokka og söluaðila.
Innsýn
Í innsýn öðlast þú einstaka innsýn í fjármálin á einfaldan og skýran hátt. Þú getur kafað dýpra, séð útgjöld í einstaka flokkum og niður á tímabil og hægt er að skoða útgjöldin á myndrænan hátt.
Ekki með Arion appið?
Arion appið er opið öllum. Hvort sem þú ert í reglulegum viðskiptum við Arion banka eða ekki getur þú sótt appið, stofnað reikninga, byrjað reglulegan sparnað og sótt um Núlán.

Spurt og svarað
Af hverju birtast sumar færslur í röngum flokki?
Get ég breytt flokki á færslu?
Er hægt að skipta færslu ef tveir flokkar eiga við sömu færsluna?
Er hægt að sleppa færslu sem á ekki heima í bókhaldinu?