Staðfesting kortagreiðslna þegar
verslað er á netinu

Til að tryggja öryggi þegar verslað er á netinu þá bjóða margar netverslanir upp á að viðskiptavinir staðfesti greiðslu áður en gengið er frá kaupum.

Þegar þú verslar á netinu og þörf er á staðfestingu greiðslu færðu tilkynningu frá Arion appinu sem leiðir þig á staðfestingarskjá greiðslunnar. Þar má sjá helstu upplýsingar um greiðsluna og hægt er að staðfesta hana eða hætta við.

Ef þú óskar eftir að staðfesta kortagreiðslu í netbanka í stað þess að nota Arion appið þá þarf að virkja þá staðfestingarleið með því að hafa samband við þjónustuver Arion banka.

Staðfestingarskjárinn er virkur í 5 mínútur, að þeim tíma liðnum þá þarftu að framkvæma greiðslufyrirmæli aftur í netverslun til þess að framkalla nýjan staðfestingarskjá.

Mikilvægt er að ganga úr skugga um að upphæð, gjaldmiðill og nafn söluaðila á staðfestingarskjá passi við kaupin, þar sem greiðslur sem þú staðfestir eru á þína ábyrgð.

Við höfum tekið saman nokkur atriði sem við hvetjum viðskiptavini okkar að hafa í huga til að auka öryggi og tryggja að kaup fari vel fram. Þessar upplýsingar má finna hér.

Spurt og svarað

Greiðslustaðfesting

Greiðslustaðfesting

Greiðslustaðfesting

Greiðslustaðfesting

Greiðslustaðfesting

Greiðslustaðfesting

1
2
3
4
5
1

Sæktu Arion appið og/eða vertu með nýjustu útgáfu appsins

Sækja fyrir iOS Sækja fyrir Android

2

Hafðu kveikt á tilkynningum Arion appsins í stýrikerfi símans

Misjafnt er milli stýrikerfa og útgáfa síma hvernig þessum stillingum er breytt.

3

Fylgstu með skilaboðum á greiðslusíðu netverslana

Gakktu úr skugga um að upplýsingar á greiðslusíðu passi við fyrirhuguð kaup.

4

Fylgstu með tilkynningum Arion appsins

Einnig getur þú skráð þig inn í appið en staðfestingarskjárinn birtist eftir innskráningu.

5

Staðfestu greiðslu, eftir að hafa gengið úr skugga um að upplýsingar passi við fyrirhuguð kaup

Hér má sjá hvernig staðfestingarskjár appsins lítur út:

Til að staðfesting berist síðan til söluaðila þarf að fara aftur í vefverslun þegar búið er að staðfesta greiðslu í appi.*
*Þetta skref á eingöngu við ef verslað var í gegnum snjalltæki og greiðsla staðfest í appi.

Ef þú óskar eftir að staðfesta kortagreiðslu í netbanka í stað þess að nota Arion appið þá þarf að virkja þá staðfestingarleið með því að hafa samband við þjónustuver Arion banka. Hér má sjá hvernig staðfestingarskjár netbankans lítur út:

Spurt og svarað