04. desember 2024
Skattfrjáls ráðstöfun á viðbótarsparnaði framlengd
Almenna úrræðið til að nýta viðbótarlífeyrissparnað skattfrjálst til íbúðakaupa og til að greiða inn...
LESA NÁNARTímabilið frá áramótum og til dagsins í dag hefur einkennst af fréttum sem hafa haft neikvæð áhrif á fjármálamarkaði hér innanlands sem og erlendis. Hingað til eru helstu fréttir ársins innrás Rússa í Úkraínu, versnandi verðbólguhorfur og hækkandi stýrivextir svo eitthvað sé nefnt. Lágvaxtatímabili síðustu ára er lokið sem hefur bersýnileg áhrif á markaðsaðstæður. Nær allir markaðir í heiminum hafa lækkað umtalsvert á árinu en hlutabréf hafa að jafnaði lækkað meira en skuldabréf. Slíkar markaðsaðstæður undirstrika mikilvægi þess að vera með dreift eignasafn til þess að standast sveiflur á mörkuðum. Lífeyrisauki leggur upp úr því að fjárfesta í ólíkum eignaflokkum, atvinnugreinum og landsvæðum til þess að dreifa áhættu sem mest.
Mikil lækkun hefur verið á innlendum hlutabréfamarkaði það sem af er ári. OMXI10, úrvalsvísitala íslenska markaðsins, lækkaði um 27,3% á fyrstu níu mánuðum ársins. Innlend félög lækkuðu verulega eftir innrás Rússa í Úkraínu þann 24. febrúar. Verðbólga mældist 9,9% í júlí, en síðustu tvær mælingar (9,7% í ágúst og 9,3% í september) benda til þess að ákveðnum toppi hafi verið náð. Til þess að bregðast við hærri verðbólgu hefur Seðlabanki Íslands hækkað stýrivexti á árinu um 3,75 prósentustig og standa þeir nú í 5,75% en seðlabankastjóri sagði á síðasta fundi peningastefnunefndar 5. október sl. að vaxta hækkanir hafi skilað árangri og peningastefnunefnd voni að þetta verði síðasta vaxtahækkun Seðlabankans í þessu ferli. Þessi mikla verðbólga, hækkun stýrivaxta, ásamt fylgni við erlenda hlutabréfamarkaði er meginástæða þeirrar lækkunar sem við sjáum á íslenska hlutabréfamarkaðnum. Ávöxtunarkrafa bæði óverðtryggðra og verðtryggðra innlendra ríkisskuldabréfa hefur hækkað á árinu sem hefur neikvæð áhrif á verð þeirra bréfa. Skuldabréfasöfn Lífeyrisauka eru að mestu verðtryggð en vægi verðtryggðra skuldabréfa af innlendu skuldabréfasafni Lífeyrisauka var um 88% í lok september.
Gengi krónunnar hefur styrkst um 3,4% frá áramótum samkvæmt gengisvísitölu Seðlabankans sem er vegið virði helstu gjaldmiðla heims gagnvart krónunni. Krónan hefur styrkst frá áramótum á móti Evru um rúmlega 4,5% en Krónan hefur veikst á móti bandaríkjadollar um tæplega 10,9% en það helst í hendur við það að dollarinn hefur verið að styrkjast á móti evrunni. Styrkingu krónunnar má m.a. rekja til endurkomu ferðamanna eftir Covid faraldurinn, aukins áhuga erlendra fjárfesta á innlendum verðbréfamarkaði og auknu aðhaldi í peningamálastefnu Seðlabanka Íslands. Til þess að bregðast við væntri styrkingu krónunnar var erlendur gjaldeyrir í undirvigt hjá sjóðnum. Núna nýlega eftir að styrking krónunnar raungerðist hefur Lífeyrisauki aukið stöðu sína í erlendum gjaldeyri jafnt og þétt. Þetta er gert vegna þess að með styrkingu krónunnar verður verð á erlendum gjaldeyri hagstæðara.
Líkt og íslenski markaðurinn hafa erlendir verðbréfamarkaðir lækkað mikið. Frá áramótum hefur heimsvísitala hlutabréfa (e. MSCI World Index) lækkað um 26,4% í Bandaríkjadal (-18,1% mælt í krónum). Flestar vísitölur hlutabréfa í Evrópu og Bandaríkjunum hafa lækkað um a.m.k. 19% mælt í grunnmyntum þeirra. Verðbólga í heiminum er há og hafa seðlabankar í hinum vestræna heimi nú þegar byrjað að hækka stýrivexti. Nokkur verðhækkun hefur verið á hráolíu á árinu sem skilað sér hingað til lands. Seðlabankar heims eru almennt taldir hafa verið of seinir að bregðast við verðbólguástandinu. Nýlega hefur Lífeyrisauki byrjað að auka stöðu sína í erlendum hlutabréfum í þeim söfnum sem eru í undirvigt en sagan segir að eftir miklar lækkanir getur verið gott að koma inn á markaðinn og auka stöðu sína í eignaflokknum.
Ávöxtun síðustu ára hefur verið afar góð en árið 2021 var með þeim bestu frá upphafi sjóðsins. Nafnávöxtun Lífeyrisauka 1 var t.a.m. 21% og ávöxtun Lífeyrisauka 2 var 19,2% en þá var innlendi hlutabréfamarkaðurinn mjög kraftmikill. Ávöxtun lífeyrissjóða er í eðli sínu háð markaðsaðstæðum hverju sinni, til skamms tíma getur ávöxtunin verið sveiflukennd en það sem skiptir mestu máli er að raunávöxtun til langs tíma sé jákvæð. Á þessari stundu siglum við í ólgusjó sveiflna á fjármálamörkuðum og þ.a.l. hefur nafnávöxtun sjóða Lífeyrisauka verið lakari en undanfarin ár. Verðbólgan bætir síðan gráu ofan á svart og bítur mikið á raunávöxtun sjóðsins. Þegar markaðir hafa lækkað mikið geta myndast tækifæri sem hægt er að nýta sér, það á sér t.d. stað þegar góð félög hafa verið undirverðlögð. Langtímaávöxtun sjóðsins hefur verið góð en á myndunum hér fyrir neðan má sjá meðalávöxtun Lífeyrisauka til 5 og 10 ára m.v. 30. September 2022 ásamt ávöxtun sjóðsins frá áramótum. Nafnávöxtun Lífeyrisauka 1 til 5 ára á ársgrundvelli hefur t.a.m. verið 9,2% og raunávöxtun 4,2%.
Sjóðfélagar Lífeyrisauka eru eins ólíkir og þeir eru margir, þeir eru á mismunandi aldri, aðstæður þeirra eru ólíkar og þeir eru misáhættusæknir. Fjárfestingarleiðir með ólíkum eignasamsetningum eru í boði eftir áhættuvilja og getur hver sjóðfélagi valið fyrir sig samkvæmt sínum þörfum. Ungur sjóðfélagi getur t.d. kosið að velja áhættumeiri fjárfestingaleið sem á sömuleiðis meiri möguleika á hærri ávöxtun, en með meiri sveiflum, á meðan eldri sjóðfélagi getur kosið að velja áhættuminni leið. Aðalatriðið er að meðalávöxtun sjóðsins til lengri tíma er mikilvægari en há eða lág ávöxtun til skamms tíma.
Almenna úrræðið til að nýta viðbótarlífeyrissparnað skattfrjálst til íbúðakaupa og til að greiða inn...
LESA NÁNARMánudaginn 2. september verður innskráningarþjónustu og umboðskerfi Ísland.is lokað. Samhliða því...
LESA NÁNARÁhættudreifing er mikilvægur þáttur í uppbyggingu eignasafna, sérstaklega þeirra sem hafa langan...
LESA NÁNARFrá afnámi fjármagnshafta fyrri hluta árs 2017 hefur hlutfall erlendra eigna hækkað verulega í...
LESA NÁNARArion banki í samstarfi við lífeyrissjóði í rekstri bankans býður til opins fræðslufundar um...
LESA NÁNARYfirlit um iðgjaldagreiðslur á tímabilinu 1. ágúst 2022 til 13. febrúar 2024 hafa verið birt á Mínum...
LESA NÁNARFræðslufundi um Lífeyrisauka, viðbótarlífeyrissparnað Arion, verður streymt á Facebook síðu Arion...
LESA NÁNARUndanfarin ár á fjármálamörkuðum hafa verið afar sveiflukennd. Árið 2021 var sem dæmi með þeim bestu...
LESA NÁNARAlmenna úrræðið til að nýta viðbótarsparnað skattfrjálst til íbúðakaupa og til að greiða niður...
LESA NÁNARÁhættudreifing er mikilvægur þáttur í uppbyggingu eignasafna, sérstaklega þeirra sem hafa langan...
LESA NÁNARArion banki gaf nýverið út Lífeyrisbókina. Þar er að finna grein sem ber heitið Vandfundið jafnvægi...
LESA NÁNARSnædís Ögn Flosadóttir, framkvæmdastjóri EFÍA og LSBÍ og rekstrarstjóri Lífeyrisauka, skrifaði grein...
LESA NÁNARNýlega samþykkti Alþingi breytingar á lífeyrissjóðalögunum sem varða m.a. upplýsingagjöf til...
LESA NÁNARÁrið sem var að líða markar eitt mest krefjandi ár á fjármálamörkuðum frá fyrri hluta síðustu aldar...
LESA NÁNARTímabilið frá áramótum og til dagsins í dag hefur einkennst af fréttum sem hafa haft neikvæð áhrif á...
LESA NÁNARTímabilið frá áramótum og til dagsins í dag hefur einkennst af fréttum sem hafa haft neikvæð áhrif á...
LESA NÁNARÁhættudreifing er mikilvægur þáttur í uppbyggingu eignasafna, sérstaklega þeirra sem hafa langan...
LESA NÁNARÁrið 2021 einkenndist af mikilli efnahagsóvissu og takmörkunum um allan heim vegna Covid...
LESA NÁNARUndanfarin ár hefur Lífeyrisauki aukið áhættudreifingu erlenda eigna sjóðsins og samhliða nýtt sér...
LESA NÁNARSnædís Ögn Flosadóttir, rekstrarstjóri Lífeyrisauka og Hjörleifur Arnar Waagfjörð, forstöðumaður...
LESA NÁNARVið notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Lestu um hvernig við notum vafrakökur og hvernig þú getur stjórnað þeim með því að smella á "Stillingar fótspora".