Betri kjör með Bláa kortinu

Afsláttur ef greitt er með Bláa kortinu hjá kvikmyndahúsum og sundlaugum auk sérkjara hjá World Class. Jafnframt eru korthafar Bláa kortsins sjálfkrafa aðilar að Einkaklúbbnum þeim að kostnaðarlausu.

  • Árgjald er 4.900 kr
  • Ferðatryggingar

Sækja um kort 

Laugarásbíó

Þú færð bíómiðann á 1.100 kr. mánudaga til föstudaga. Vúhú!

 

Gildir fyrir korthafa og einn gest.
Gildir ekki um íslenskar kvikmyndir né í VIP sal.

Smárabíó

25% afsláttur af miðaverði alltaf? Já takk.
 

 

Gildir fyrir korthafa og einn gest.
Gildir ekki í Lúxussal eða með öðrum tilboðum.

Sambíóin

Bíómiði á 1.340 kr. og meira popp og gos?

 

Gildir fyrir korthafa og einn gest.
Gildir ekki í Lúxussal eða með öðrum tilboðum.

Æfingakort í World Class
og WorldFit í kaupbæti!

Þú færð námsmannakjör á korti hjá World Class þegar þú greiðir með Bláa kortinu í afgreiðslu World Class. Ekki nóg með það, þú færð einnig grunnnámskeið í WorldFit í kaupbæti.

Það eina sem þú þarft að gera er að senda tölvupóst á worldfit@worldclass.is með nafni og kennitölu og mynd af kvittun eftir að hafa gengið frá greiðslu á æfingakorti. 

Ódýrara í sund!

Það er alltaf gaman að spara!

Þess vegna bjóðum við þér 50% afslátt í sund í Reykjavík og Hafnarfirði.

Engin gjöld af debetkortum
fyrir 23 ára og yngri

Hjá okkur greiða viðskiptavinir sem eru 23 ára og yngri engin færslugjöld og ekkert árgjald af debetkortum.


 

Svona virkar viðbótarlífeyrissparnaður

2% launahækkun

Þegar þú stofnar viðbótarlífeyrissparnað velur þú að greiða 2 eða 4% af launum þinum í viðbótarlífeyrissparnað og á móti greiðir launagreiðandi þinn 2%, þannig færðu launahækkun frá launagreiðanda þínum. Þú getur því verið að leggja fyrir allt að 6% af heildarlaunum í sparnað. 

Skattfrelsi við íbúðakaup

Ef þú ert að kaupa íbúð áttu möguleika á á að nýta viðbótarlífeyrissparnaðinn skattfrjálst til að auðvelda þér kaupin eða þú getur notað sparnaðinn til að greiða skattfrjálst inn á íbúðalánið þitt.

Reiknaðu út þinn sparnað

Hlutfall af launum
Inneign við 70 ára aldur
Reiknivélin sýnir þróun á áætlaðri inneign m.v. uppgefnar forsendur og 3,5% raunávöxtun. Athugið að niðurstaðan er eingöngu sett fram í dæmaskyni.
Þitt framlag
Mótframlag
Ávöxtun

Við hjálpum þér að brúa bilið
meðan á námi stendur

Sérfræðingar okkar taka vel á móti námsmönnum og fara yfir þá lánamöguleika sem eru í boði hverju sinni.

Námslokalán

Ef þú ert að ljúka námi getur þú sótt um Námslokalán innan eins árs frá útskrift.

Nánar um námslokalán

 

 

 

Einkaklúbburinn fylgir með!

Korthafar Bláa kortsins eru sjálfkrafa aðilar að Einkaklúbbnum þeim að kostnaðarlausu.

Einkaklúbbsappið veitir korthöfum Bláa kortsins aðgang að afsláttum og fríðindum hjá hundruðum fyrirtækja um allt land.
 

Sækja fyrir iOS Sækja fyrir Android

Léttu þér
íbúðakaupin

Þú getur nýtt viðbótarlífeyrissparnaðinn þinn skattfrjálst til að létta þér íbúðakaupin.

Boðið er upp á tvö úrræði.

  • Húsnæðissparnað, þ.e. uppsafnaða eingreiðslu iðgjalda frá 1. júlí 2014 vegna þeirra launatímabila sem þú varst ekki íbúðareigandi
  • Reglulegar greiðslur framtíðariðgjalda inn á lán sem gildir um launatímabil frá því að sótt er um ráðstöfun þar til tímabili úrræðis lýkur.

Ertu að kaupa þína fyrstu íbúð?

Þú getur sótt um úrræði fyrstu íbúðar á skattur.is ef minna en 12 mánuðir eru frá kaupsamningi fyrstu íbúðar. Úrræðið nær yfir tíu ára samfellt tímabil. 

Úrræði fyrstu íbúðar gildir líka um þá sem hafa ekki átt íbúð síðastliðin 5 ár.

Almenna úrræðið 

Þú getur sótt um almenna úrræðið á leidretting.is ef ekki er um fyrstu íbúðakaup að ræða eða ef meira en tólf mánuðir eru frá kaupsamningi fyrstu íbúðar.

Úrræðið nær yfir níu ára tímabil frá 1. júlí 2014 til 31. desember 2024.

Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast hér