Spurt og svarað
Algengar spurningar vegna innleiðingar á nýju innlána- og greiðslukerfi.
Spurt og svarað
Af hverju sé ég ekki upplýsingar um millifærslu á reikningsyfirlitnu hjá mér?

Í einhverjum tilvikum sjást ítarupplýsingar um millifærslu ekki á yfirliti fyrir færslur sem framkvæmdar voru 16.-18. apríl, en gera má ráð fyrir að allar debetkortafærslur verði sýnilegar 20. apríl.
Af hverju fæ ég villumeldingu um að leyninúmer sé rangt?

Nýja greiðslukerfið gerir greinarmun á há- og lágstöfum við staðfestingu á millifærslu. Það getur þýtt að ef leyninúmer reiknings inniheldur bókstaf gæti þurft að slá inn há- eða lágstaf en það fer eftir því hvernig leyninúmerið var upprunalega stofnað.
Af hverju fæ ég ekki tilkynningu um innborgun?

Tilkynningar í netbanka og Arion appinu verða óvirkar til 10. maí.
Krafa sem var skráð í framvirka greiðslu er nú undir ógreiddum reikningum, greiðist hún sjálfkrafa?

Kröfur sem skráðar voru í framvirkar greiðslur verða greiddar sjálfvirkt, unnið er að því að leiðrétta sýn í netbanka í þeim tilfellum sem krafa kemur fram tvisvar sinnum með sama kröfunúmeri en hver og ein krafa greiðist einu sinni og því þurfa viðskiptavinir ekki að bregðast við.
Millifærsla inn á Netdreifingu var ekki greidd um helgina - hvað veldur?

Reglulegar greiðslur greiðast á mánudegi ef greiðsludagur lendir á helgi.
Kemur villa við launakeyrslu?
Kemur villa við launakeyrslu?
Bankanúmer gæti verið rangt. Ekki er lengur hægt að millifæra inn á úreld bankanúmer, sjá töflu með nýjum bankanúmerum.
Af hverju er verið að skipta um greiðslukerfi?

Um er að ræða verkefni þar sem 40 ára gömlum sérhönnuðum innlána- og greiðslukerfum RB verður skipt út fyrir staðlaða alþjóðlega hugbúnaðarlausn. Markmið endurnýjunarinnar er að auka hagræði og draga úr kostnaði við rekstur upplýsingakerfa bankans og styðja við frekari vöruþróun. Kerfin munu taka mið af breytingum á evrópsku regluverki og þannig einfalda bankanum að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru.
Hvað er Sopra?
Hvað er Sopra?
Sopra Banking Software og lausnir frá RB eru reknar sameiginlega fyrir íslenska bankakerfið. Sopra, sem er eitt stærsta hugbúnaðarfyrirtæki Evrópu með yfir 40 ára reynslu, er samstarfsaðili yfir 800 fyrirtækja í 70 löndum og hefur nú þegar tekið þátt í tveimur innleiðingum á Íslandi hjá Landsbankanum og Íslandsbanka.