Það er einfalt að spara
í sjóðum

Það er bæði einfalt og þægilegt að kaupa og selja í sjóðum Stefnis í appi og netbanka. Þú byrjar á því að stofna til verðbréfaviðskipta með rafrænum skilríkjum og getur átt viðskipti samdægurs.

  • 25% afsláttur af upphafsþóknun í appi og netbanka
  • Einfalt að skrá sig í áskrift að sparnaði
  • Börn á fermingaraldri sem kaupa í sjóðum Stefnis fá allt að 16.000 kr. mótframlag frá Stefni

 

Hvað þarf að gera til að hefja sjóðaviðskipti?

Til að geta átt viðskipti með sjóði þarf að stofna til verðbréfaviðskipta. Þú svarar nokkrum spurningum um þekkingu og reynslu á verðbréfaviðskiptum og í kjölfarið er stofnað verðbréfasafn sem er nauðsynlegt fyrir uppgjör viðskipta með verðbréf og sjóði.  

Stofna til verðbréfaviðskipta

Skrá ófjárráða í verðbréfaviðskipti

Viðskipti með sjóði

Þú getur gengið frá viðskiptum í Arion appinu og netbanka. Veittur er 25% afsláttur af upphafsþóknun og afgreiðslugjald er fellt niður við kaup í sjóðum í Arion appinu og í netbankanum.

Kaup í sjóðum í Arion appinu

Þú velur meira, verðbréf og sjóði. Því næst velur þú þann sjóð sem þú vilt kaupa í, skráir upphæð og velur greiðslumáta.

Kaup í sjóðum í netbanka

Þú velur verðbréf og sjóði. Því næst velur þú þann sjóð sem þú vilt kaupa í, skráir upphæð og velur úttektarreikning.

Fyrirtæki

Nú geta fyrirtæki og aðrir lögaðilar átt verðbréfaviðskipti í Arion appinu eða netbanka.

Kynntu þér málið hér.

Fylgstu með í Arion appinu og netbankanum

Í Arion appinu og netbanka er hægt að eiga viðskipti með sjóði hvenær sem þér hentar. Þar er jafnframt að finna stöðu og hreyfingar á safninu þínu svo auðvelt er að fylgjast með.

Reglulegur sparnaður í sjóðum

Veittur er 50% afsláttur af upphafsþóknun og 100% afsláttur af afgreiðslugjaldi í reglulegum sparnaði í sjóðum. Margir kjósa að vera með áskrift í fleiri en einum sjóði, leggja t.d. 15.000 kr. fyrir og deila upphæðinni á þrjá ólíka sjóði fyrir mismunandi markmið.

Í Arion appinu og netbankanum er auðvelt að skrá sig í áskrift með reglulegum sparnaði í sjóðum.

Netbanki:

  • Þú velur þann sjóð sem hentar þér
  • Smellir á „Kaupa“
  • Skráir mánaðarlega áskrift
  • Fyllir út formið og ákveður upphæðina sem þú vilt leggja fyrir á mánuði, lágmarksupphæð er 5.000 kr.
  • Þú ákveður greiðslumáta en hægt er að láta skuldfæra sjálfkrafa af reikningi eða greiðslukorti um hver mánaðamót.

Viðskipti með sjóði í netbanka

Arion app:
  • Smellir á „Meira“ og svo næst á „Verðbréf“
  • Smellir á „Sjóðir“ og velur þann sjóð sem hentar þér best
  • Smellir á „Kaupa“ og ákveður upphæðina sem þú vilt leggja fyrir á mánuði, lágmarksupphæð er 5.000 kr.
  • Mikilvægt er að haka við „Skrá í mánaðarlega áskrift“
  • Lokaskrefið er að smella á „Staðfesta“

Viðskipti með sjóði í appi

Almennur fyrirvari vegna fjárfestinga í sjóðum

Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á að ekki verði um neina ávöxtun að ræða eða að höfuðstóll tapist. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Vakin er athygli á að ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna gengisflökts.

Í útboðslýsingu og lykilupplýsingum verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta er að finna nánari upplýsingar um viðkomandi sjóð, m.a. um áhættu og hvort umræddur sjóður telst verðbréfasjóður eða sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta. Varðandi þá sjóði sem er að finna á vefsíðu bankans undir yfirliti sjóða þá má nálgast útboðslýsingu, lykilupplýsingar o.fl. vegna viðkomandi sjóðs með því að smella á heiti sjóðs. Jafnframt er hægt að nálgast framangreind gögn í útibúum bankans. Upplýsingar þær sem hér koma fram eru einungis veittar í upplýsingaskyni og þær ber ekki að skoða sem tilboð á einn eða annan hátt og ekki skal líta á efnið sem ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga.

Arion banki er helsti söluaðili sjóða Stefnis hf. sem er með starfsleyfi frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Ísland sem rekstrarfélag verðbréfasjóða skv. lögum nr. 116/2021, um verðbréfasjóði og rekstraraðili sérhæfðra sjóða skv. lögum nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Stefnir er sjálfstætt starfandi fjármálastofnun sbr. lög nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki. Stefnir er dótturfélag Arion banka hf.

Upplýsingar þær sem hér koma fram byggja á heimildum sem taldar eru áreiðanlegar en ekki er hægt að ábyrgjast að þær séu réttar. Áskilinn er réttur til leiðréttinga. Arion banki eða starfsmenn bankans bera enga ábyrgð á ákvörðunum eða viðskiptum sem aðilar kunna að eiga í ljósi þeirra upplýsinga sem hér koma fram.