Innheimtuþjónusta einstaklinga

Það er einfalt að gefa út og innheimta viðskiptakröfur í netbankanum. Fyrsta skrefið er að gera samning um innheimtuþjónustu en það er gert með því að samþykkja skilmála í Netbankanum undir „Innheimtukröfur“. Með innheimtuþjónustu sparast bæði tími og peningar þar sem þú getur hvenær sem er skráð, breytt og/eða fellt niður kröfur í netbankanum.

Innheimta húsaleigu

Þegar sótt er um húsaleiguþjónustu þarf að vera til samningur um innheimtuþjónustu. Ef þú hefur ekki gert samning áður getur þú gert það með því að samþykkja skilmála í Netbankanum undir „Innheimtukröfur“ eða með því að koma með undirritað frumrit af samning í næsta útibú.

Fylla þarf út beiðni um innheimtu á húsaleigu. Hægt er að undirrita beiðnina með rafrænni undirritun. Sendu tölvupóst með upplýsingum um leigutaka, leiguupphæð og hvort leigan sé bundin vísitölu á arionbanki@arionbanki.is eða hafðu samband við þjónustuver í síma 444-7000. Einnig getur þú komið með beiðnina í næsta útibú ef rafræn undirritun hentar ekki.

Athugið að allar breytingar er varða þjónustuna þarf að tilkynna fyrir 20. hvers mánaðar.

Hvað felst í þjónustunni?

  • Innheimta húsaleigu með greiðsluseðli gegnum innheimtuþjónustu sem hægt er að setja í beingreiðslur hjá hvaða banka sem er. Hentar fyrir smærri sem stærri leigusala. Innheimta á öðrum kostnaði eða sérgjöldum á sama greiðsluseðli, t.d. fyrir hita eða rafmagni svo að eitthvað sé nefnt
  • Greiðsluseðlar og yfirlit
  • Leigusali ákveður gjalddaga og eindaga
  • Hægt að velja upphæð vanskilagjalda og ákveða hvort það eigi að vera dráttarvextir. Greiddir greiðsluseðlar færast á reikning leigusala hjá bankanum
  • Skulda- og greiðslulista og nafnalista er hægt að nálgast í Netbankanum hvenær sem er eða í næsta útibúi
  • Kostnaður fyrir þessa þjónustu er samkvæmt verðskrá bankans

B2B - Beintengingar

Arion banki býður upp á öflugar beintengingar (B2B tengingar) á milli innheimtukröfu í netbanka og bókhaldskerfi þeirra.

  • Hægt er að skrá kröfurnar í gegnum netbankann eða senda þær beint úr bókhaldskerfi með textaskrá
  • Viðskiptavinir geta sótt greiðsluupplýsingar með textaskrám eða lesið beint inn í bókhaldskerfi með B2B, það sparar tíma og dregur úr villuhættu

Fyrir frekari upplýsingar um uppsetningu sendu tölvupóst á arionbanki@arionbanki.is eða hafðu samband við þjónustuver 444-7000.