Viðbótarlífeyrissparnaður
Lífeyrisauki, viðbótarlífeyrissparnaður Arion er einföld leið til að auka tekjurnar og spara um leið. Hvort sem þú ert að spara til efri áranna eða til að auðvelda þér íbúðakaupin þá er viðbótarlífeyrissparnaður góð leið.

Útgreiðsluráðgjöf
og umsóknir
Lífeyrisráðgjafar Arion banka veita sjóðfélögum útgreiðslu ráðgjöf á fyrir fram bókuðum fundum í höfuðstöðvum bankans, Borgartúni 19, 105 Reykjavík og í gegnum fjarfundi úr útibúum bankans á landsbyggðinni og Kringlunni. Sjóðfélagar geta einnig sótt sjálfir um útgreiðslu í gegnum Mínar síður.
Útgreiðsla viðbótarsparnaðar
Útgreiðsla vegna aldurs
Viðbótarsparnaður er laus til útgreiðslu við 60 ára aldur og þú getur valið það fyrirkomulag sem þér hentar best. Settu upp þitt útgreiðslu fyrirkomulag í reiknivélinni hérna fyrir neðan.
Útgreiðsla vegna örorku
Við 10% örorku eða meira er almennt hægt að fá séreign greidda út með jöfnum árlegum greiðslum.
Útgreiðsla vegna andláts
Við andlát erfist öll séreign að fullu og greiðist út eftir hentugleika erfingja. Maki og börn greiða engan erfðafjárskatt af inneigninni.
Útgreiðsludagar
Umsóknir þurfa að berast a.m.k. 5 virkum dögum fyrir útgreiðsludag. Útgreiðslur eru annars vegar 15. dag hvers mánaðar og hins vegar síðasta virka dag hvers mánaðar vegna reglulegra greiðslna. Beri útgreiðsludagur upp á frídegi fer útgreiðsla fram síðsta virka dag á undan.
Skattlagning útgreiðslna
Tekjuskattur er greiddur af útgreiðslu séreignar í samræmi við lög um skattlagningu tekna á hverjum tíma. Umsækjendur bera ábyrgð á að upplýsa sjóðinn um nýtingu persónuafsláttar og viðeigandi skattþrepi útgreiðslna.
Nánar á vef RSKTryggingastofnun
Útgreiðsla viðbótarsparnaðar getur haft áhrif á greiðslur frá TR. Mælt er með að leita ráðgjafar hjá TR um áhrif útgreiðslu viðbótarsparnaðar á greiðslur frá TRBe.
Nánar á vef tryggingastofnunar