Greiðsluhlé vegna afborgana lána

Greiðsluhlé vegna afborgana lána

LSBÍ mun koma til móts við þá sjóðfélaga sem sjá fram á erfiðleika við að standa skil á afborgunum lána vegna Covid-19. Til að auðvelda sjóðfélögum að takast á við mögulegar áskoranir framundan býðst þeim að gera hlé á afborgunum lána í allt að þrjá mánuði.

Með greiðsluhléi eru afborganir lána frystar í þrjá mánuði, þ.e. ekki þarf að greiða af láninu næstu þrjá mánuði eftir undirritun. Afborganir og vextir lána leggjast á meðan á höfuðstól lánsins til hækkunar á því. Þessi hækkun á höfuðstól leiðir til hærri afborgana af láninu eftir að greiðsluhléi lýkur.

Ef þörf er á frekari sveigjanleika er farið yfir málin með hverjum og einum.

Í ljósi aðstæðna hvetjum við sjóðfélaga til að nýta rafrænar leiðir til þess að hafa samband.

Skrá þarf skuldfærslureikning vegna kostnaðar við þinglýsingu og veðbók.

Við munum hafa samband eins fljótt og aðstæður leyfa.

Sækja um greiðsluhlé á afborgunum

Fréttasafn

01. nóvember 2022

Málefni ÍL-sjóðs

LSBÍ er einn af eigendum að skuldabréfum með ríkisábyrgð sem Íbúðalánasjóður hóf útgáfu á árið 2004...

LESA NÁNAR

26. september 2017

Sjóðfélagayfirlit

Yfirlit sjóðfélaga LSBÍ eru komin í hús. Yfirlitin eru með hreyfingum síðustu átján mánaða...

LESA NÁNAR

29. apríl 2014

Ársfundur LSBÍ

Ársfundur LSBÍ verður haldinn í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, miðvikudaginn 28. maí...

LESA NÁNAR

29. apríl 2013

Ársfundur LSBÍ

Ársfundur LSBÍ verður haldinn í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, miðvikudaginn 29. maí...

LESA NÁNAR

16. maí 2012

Ársfundur LSBÍ

Ársfundur LSBÍ verður haldinn í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, miðvikudaginn 30. maí...

LESA NÁNAR