Ábyrgar fjárfestingar hluti af framúrskarandi UFS einkunn

Ábyrgar fjárfestingar hluti af framúrskarandi UFS einkunn

Aðalmarkmið að baki hugmyndafræði ábyrgra fjárfestinga er að stuðla að jákvæðum áhrifum á umhverfið, félagslega þætti og stjórnarhætti, (UFS e. ESG) draga úr áhættu og skila sjálfbærri langtímaávöxtun. Lífeyrissjóður starfsmanna Búnaðarbanka Íslands hf (LSBÍ) hefur ákveðið að horfa til þessara þátta í starfsemi sinni og sett var stefna í þeim efnum árið 2018 sem síðan þá hefur verið framfylgt með virkum hætti.

Eignastýring Arion banka, sem annast eignastýringu sjóðsins, hefur þróað aðferðafræði og innleitt verklag ábyrgra fjárfestinga í starfshætti sína fyrir hönd sjóðsins þar sem horft er til þriggja grunnþátta sjálfbærni; umhverfis- og félagslegra þátta og stjórnarhátta. Samhliða því er sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um samfélagsábyrgð (e. UN Global Compact) hafður til hliðsjónar við eignastýringu LSBÍ. Þessi sáttmáli tengist heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun með einum eða öðrum hætti og með því má segja að í starfsemi sjóðsins sé unnið í átt að markmiðunum.

Ánægjulegt er að greina frá því að m.a. fyrir þessa vinnu eignastýringar fyrir hönd LSBÍ gaf Reitun nýverið Arion banka, í áhættumati sínu á UFS þáttum framúrskarandi einkunn. Einnig er nefnt að áhrifavald hafi verið nýtt með jákvæðum þætti með því að eignastýring hafi að auki veitt fyrirtækjum aðstoð og eftirfylgni við að standa betur að málaflokknum.

https://www.arionbanki.is/bankinn/fleira/frettir/frett/2020/10/13/Reitun-gefur-Arion-banka-framurskarandi-einkunn-i-UFS-ahaettumati/

 

Fréttasafn

01. nóvember 2022

Málefni ÍL-sjóðs

LSBÍ er einn af eigendum að skuldabréfum með ríkisábyrgð sem Íbúðalánasjóður hóf útgáfu á árið 2004...

LESA NÁNAR

26. september 2017

Sjóðfélagayfirlit

Yfirlit sjóðfélaga LSBÍ eru komin í hús. Yfirlitin eru með hreyfingum síðustu átján mánaða...

LESA NÁNAR

29. apríl 2014

Ársfundur LSBÍ

Ársfundur LSBÍ verður haldinn í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, miðvikudaginn 28. maí...

LESA NÁNAR

29. apríl 2013

Ársfundur LSBÍ

Ársfundur LSBÍ verður haldinn í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, miðvikudaginn 29. maí...

LESA NÁNAR

16. maí 2012

Ársfundur LSBÍ

Ársfundur LSBÍ verður haldinn í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, miðvikudaginn 30. maí...

LESA NÁNAR